% -*- mode: TeX; coding: latin-1; -*- % From http://www.unicode.org/standard/translations/icelandic.html Tölvur geta í eðli sínu aðeins unnið með tölur. Þær geyma bókstafi og önnur skriftákn með því að úthluta þeim tölu. Áður en Unicode kom til voru hundruð mismunandi túlkunarkerfa sem úthlutuðu þessum tölum. Ekkert eitt túlkunarkerfi gat innihaldið nægilegan fjölda skriftákna; t.d. þarfnast Evrópusambandið nokkurra mismunandi kerfa til að spanna öll tungumál þess. Jafnvel fyrir eitt tungumál, eins og ensku, var eitt túlkunarkerfi ekki nóg fyrir alla bókstafi, greinarmerki og algengustu einingatákn. Túlkunarkerfin hafa einnig verið í andstöðu hvert við annað, þ.e. tvö kerfi geta notað sömu tölu fyrir tvö ólík skriftákn eða notað tvær mismunandi tölur fyrir sama táknið. Sérhver tölva þarf (sérstaklega miðlarar) að styðja margs konar túlkanir á stöfum; engu að síður er alltaf hætta á stafabrenglun þegar gögn fara á milli tölva og á milli mismunandi túlkunarkerfa. \endinput